| Forsíða |
|
|
|
|
Minningarsjóður Margrétar Oddsdóttur hefur opnað nýja heimasíðu www.maggaodds.is Hægt er að nálgast minningarkortin og afmæliskortin þar.
Minningarkort Margrétar Oddsdóttur eru núna komin í gagnið. Hægt er að panta Minningarkort, sjá nánar hérna undir Minningarkort. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Gönguferð að hætti Margrétar
3. Október 2010. Kl. 15:00 Gengið verður frá Snælandsskóla um Fossvogsdalinn. Kl. 16:00 Kaffi og kökur í Safnaðarheimili Kópavogskirkju.
Allir velkomnir
Unnið hefur verið að stofnun Minningarsjóðs Margrétar Oddsdóttur frá því í vor. Markmið sjóðsins er að styðja brjóstaskurðlækningar við Landspítalann. Skipulagsskrá sjóðsins er að finna hér á síðunn. Leitað hefur verið til einstaklinga, stofnanna og fyrirtækja um framlög.
Hinn 3. október n.k. hefði Margrét orðið 55 ára. Í tilefni af því og til þess að fagna stofnun minningarsjóðsins hefur fjölskylda Margrétar og undirbúingshópurinn að stofnun sjóðsins ákveðið að bjóða til samvista með kaffi og meðlæti í safnaðarheimili Kópavogskirkju (gegnt Gerðarsafni) sunnudaginn 3. okt kl. 16. Undanfari þess verður stutt gönguferð um Fossvogsdalinn sem farin verður kl. 15 frá Snælandsskóla.
Gengið verður frá formlegri stofnun minningarsjóðsins strax eftir fyrstu helgina í október. Nafna allra stofnaðila verður getið í skipulagsskrá. Ágætlega hefur gengið að safna framlögum og er þeim innilega þakkað sem hafa stutt sjóðinn. Það er von undirbúningshópsins að sjóðurinn verði enn aukinn að styrk og eru öll framlög því vel þegin. Kennitala sjóðsins er 700410-1610 og reikningsnúmer 0130-15-381828. Einnig er tekið við framlögum hér á síðunni.
júlí 2010 Bætum ein-stök brjóst er skráð sem góðgerðarfélag í Reykjavíkur Maraþonið, hægt er að heita á okkur og styrkja með því að skrá sig á www.hlaupastyrkur.is
|
|||||||||||||||||||||||||||||||


