Skipulagsskrá
Skipulagsskrá PDF Prenta Rafpóstur
       
 
Skipulagsskrá fyrir minningarsjóð
Margrétar Oddsdóttur.
 
 
   1. gr.  
  Nafn sjóðsins er: Minningarsjóður Margrétar Oddsdóttur.
F.  03.10.1955, d. 09.01.2009. Heimili sjóðsins og varnarþing er í Reykjavík.
 
     
   2. gr.  
  Stjórn sjóðsins skipa:  
  Haukur Oddsson
 
  Þorvaldur Jónsson  
  Jarþrúður  Jónsdóttir  
  Jónína Ósk Lárusdóttir  
  Hrönn Guðmundsdóttir  
     
   3. gr.  
  Hlutverk sjóðsins er að styrkja skurðmeðferð brjóstakrabbameins á Landsspítalanum. Styrkirnir verða nýttir til meðferðar á legudeild, skurðstofu og brjóstamóttöku göngudeildar.
Hlutverk sitt getur sjóðurinn rækt m.a. með því að:
 
     
      i.   Bæta tækjakost sem notaður er við skurðmeðferð  
         brjóstakrabbameins.
 
      ii.  Bæta aðstöðu sjúklinga sem eru til meðferðar.  
      iii. Auka þekkingu starfsfólks sem annast sjúklinga í meðferð.  
      iv. Efla skráningu og gæðaeftirlit meðferðar.  
     
   4. gr.  
  Stofnendur skipa fimm manna stjórn sjóðsins til þriggja ára í senn.  Stjórnarstörf skulu ekki launuð. Falli stjórnarmaður frá skulu stjórnarmenn velja nýjan mann í stjórn.  
     
   5. gr.  
   Stofnfé sjóðsins er krónur þrjár milljónir króna. Stjórn sjóðsins fer með fjárreiður hans.  
     
   6. gr.  
   Tekjur sjóðsins munu skapast af ávöxtun eigna, fjáröflunum og frjálsum framlögum.
 
     
   7. gr.

 

Reikningsár sjóðsins er almanaksárið, nema fyrsta árið þá er reikningsárið frá staðfestingu á skipulagsskrá sjóðsins til næstu áramóta þar á eftir.

Reikningar sjóðsins skulu áritaðir um endurskoðun af endurskoðanda sem stjórn sjóðsins velur.

 
     
   8.gr.  
   
Stjórn sjóðsins skal skipuð fimm mönnum, þremur aðalmönnum og tveimur til vara,  til 3ja ára í senn. Stofnendur tilnefna fyrstu stjórn, en eftirleiðis mun fráfarandi stjórn við lok kjörtímabils kjósa nýja stjórn.
Við val stjórnarmanna skal einfaldur meirihluti stjórnar ráða. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum. Stjórnin stýrir öllum málefnum sjóðsins og kemur fram út á við fyrir hönd hennar. Stjórnin skal sjá til þess að skipulag og starfsemi hennar sé jafnan í réttu og góðu horfi. Undirskriftir meirihluta stjórnar skuldbinda sjóðinn. Stjórn sjóðsins getur veitt prókúruumboð fyrir hans hönd.
Stjórnarfundir eru lögmætir ef meirihluti stjórnar sækir fund. Mikilvæga ákvörðun má þó ekki taka án þess að allir stjórnarmenn hafi haft tök á að fjalla um málið, sé þess nokkur kostur. Halda skal fundargerðabók um það sem gerist á stjórnarfundum.
 
     
   9. gr.  
  Formaður stjórnar boðar til stjórnarfundar, en hver stjórnarmaður getur krafist stjórnarfundar. Stjórnin fundar svo oft sem þurfa þykir þó eigi sjaldnar en tvisvar á ári.  
     
   10. gr.  
  Miða skal við að úthlutað sé úr sjóðnum einu sinni á ári, á fæðingardegi Margrétar, oftar ef tilefni þykir til. Umsóknum um styrki og greinargerðum þar með skal skilað til stjórnar.  
     
   11. gr.  
   Skipulagsskrá þessari verður breytt eða sjóðnum slitið með ákvörðun meirihluta stjórnar. Komi til slita sjóðsins skal eignum ráðstafað í samræmi við hlutverk hans sbr. 3. gr.  
     
   12. gr.  
  Skipulagsskrá þessa skal leggja fyrir sýslumanninn á Sauðárkróki.