|
Bætum brjóst góðgerðarfélag var stofnað í maí 2009, af Hrönn Guðmundsdóttur, Rannveigu Lund og Ernu Björk Hjaltadóttur.
|
|
|
Markmiðið með stofnun félagsins er að stuðla að bættri þjónustu og meðferð við þær konur sem greinast með brjóstakrabbamein.
|
|
|
Félagið stóð að söfnun á Medical tattú tæki fyrir brjóstagöngudeild Landspítala Háskólasjúkrahús (LSH), sem lauk sumarið 2009 og var Medical tattú tækið tekið í notkun í byrjun október 2009.
|
|
|
Söfnunin fyrir Medical tattú tækinu gekk hraðar fyrir sig en gert var ráð fyrir, en það var því að þakka að Samhjálp kvenna stóð einnig að söfnun á tækinu.
|
|
Í lok október setti ung kona, Hulda Bjarkar, íslandsmet í róðri á róðravél og réri 103 km. til styrktar Bætum brjóst.
|
|
| |
|
| |
|
| |
|
|