Minningarsjóður Margrétar Oddsdóttur PDF Prenta Rafpóstur

Stofnaður hefur verið Minningarsjóður Margrétar Oddsdóttur. Sjóðnum er ætlað að styrkja skurðlækningar við brjóstakrabbameini við Landspítala.

 

 

Að undirbúningi til stofnunar sjóðsins standa fulltrúar lækna og hjúkrunarfræðinga sem annast skurðmeðferð brjóstakrabbameins, fulltrúar Bætum ein-stök brjóst og ættingjar Margrétar. Fyrir liggur stofnframlag ofangreindra aðila. Fjárvarsla verður hjá Landspítala.

 

 

Lífslíkur kvenna með brjóstakrabbamein hafa batnað mikið síðastliðna áratugi. Vegna þess hve lífslíkur eru góðar er vaxandi áhersla skurðmeðferðar lögð á lífsgæði krabba-meinsgreindra kvenna, m.a. með endursköpunaraðgerðum á brjóstum á sérhæfðum brjóstamiðstöðvum. 

 

Skurðmeðferð hefur því orðið umfangsmeiri, þar sem oft fer saman aðgerð til lækningar  á krabbameini og aðgerð til  að leiðrétta það lýti sem krabbameinsaðgerðin veldur.                   

 

Ör þróun  innan þessa sviðs  kallar á meiri og betri aðstöðu fyrir bæði sjúklinga og meðferðaraliða.   

 

Hlutverk Minningarsjóðs Margrétar Oddsdóttur er að styðja  og styrkja þessa starfssemi.

 

 
   

Margrét Oddsdóttir fæddist á Ísafirði 3. október 1955.
Hún lauk embættisprófi frá læknadeild Háskóla Íslands 1982.

 

Hún stundaði sérfræðinám í skurðlækningum við Yale University School of Medicine og sérfræðinám í kviðsjáraðgerðum við Emory University School of Medicine í Atlanta í Georgíu.

 

Eftir 9 ára dvöl í Bandaríkjunum sneri hún aftur heim til Íslands og hóf störf á Landspítalanum 1994.

 

Margrét var alþjóðlega mikilsvirtur skurðlæknir, einkum sem brautryðjandi í kviðsjáraðgerðum og skrifaði m.a. um slíkar aðgerðir í eina þekktustu kennslubók í skurðlækningum sem gefin er út. Eftir hana liggur fjöldi vísindagreina í alþjóðlegum læknatímaritum

 

Margrét starfaði sem sérfræðilæknir á Landspítala frá 1994 til dauðadags.

 

Hún var ráðinn fyrsti yfirlæknir að skurðlækningadeild Landspítalans 2003 eftir sameiningu allra skurðlækningadeilda sjúkrahúsanna í Reykjavík.

 

Hún var skipuð dósent í almennum skurðlækningum við læknadeild HÍ 1995 og prófessor frá 2002. Hún gegndi margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir Landspítala og Háskóla Íslands og sat í stjórn læknadeildar háskólans.

 

Þessum störfum gegndi hún meðan heilsa hennar leyfði.
Margrét lést úr brjóstakrabbameini 9. janúar 2009.