|
Upplýsingar um tækið.
Í vaxandi mæli er konum með brjóstakrabbamein boðið upp á hlutabrottnám (fleygskurð) í stað brottnáms (mastekómíu) sem hluta af skurðmeðferð þeirra.
Víða er hlutfall hlutabrottnáms vs. brottnáms orðið 70-80%/20-30%. Með nýjum aðferðum í skurðmeðferðinni og snemmgreiningu má búast við því að þetta hlutfall aukist enn frekar. Hjá sumum brjóstadeildum er hlutfall þetta notað sem mælikvarði á gæði skurðmeðferðarinnar.
Forsenda þess að hlutabrottnám og geislameðferð jafngildi brottnámi er að skurðbrúnirnar séu án æxlisvaxtar. Mikilvægur þáttur í því að þetta takist er að fá röntgenmynd af sýninu sem tekið er úr brjóstinu. Eins og staðan er í dag, eru einu tækin sem geta tekið slíkar myndir staðsettir á Krabbameinsfélagi Íslands (KÍ). Það þarf því að senda fleygskurðasýni með leigubíl frá Landspítala á KÍ til myndatöku. Á meðan er konunni haldið svæfðri þar til myndin hefur verið skoðuð af röntgenlækni KÍ og niðurstöður myndarinnar síðan gefnar skurðlækni símleiðis. Skurðlæknirinn fær aldrei að sjá röntgenmyndina sjálfur fyrr en nokkrum dögum síðar. Sýnið fer síðan aftur með leigubíl á meinafræðideild til frekari vinnslu og smásjárskoðunar. Ákaflega mikið óhagræði er í þessu skipulagi, eykur hættu á mistökum og í raun óásættanlegt fyrir sjúklingana og skurðlækna deildarinnar.
Tækið kallast á ensku piXarray 100 (digital specimen radiography system). Auðvelt er að færa tækið frá einni stofu til annarrar og býður það upp á að það að hægt verði að nýta það til annarra hluta s.s. við greiningaruppvinnslu kvenna með brjóstamein.
Þetta tæki myndi hafa gríðarlega mikla hagræðingu í för með sér, stytta aðgerðartíma margra brjósta-aðgerða, auka öryggi fyrir sjúklinga og bæta gæði meðferðarinnar.
|